mánudagur, maí 25, 2009

Stórfréttir

Haldiði ekki að ég hafi bara fengið bónorð um helgina. Nánar tiltekið á laugardaginn (23.maí). Yndislega óvænt og rómantískt í bland við fuglagarg og geislandi sól í óviðjafnanlegri íslenskri náttúru í Flateynni fallegu

Tapaði kúlinu gjörsamlega og skældi eins og smástelpa .... :)

Dagurinn stóri hefur ekki verið ákveðinn en stefnt að haustinu.

þriðjudagur, maí 19, 2009

I'm baaaaaaaack

Ég tók eftir því þegar ég opnaði bloggið að ég er samtals búin að "pósta" sléttar 500 færslur á þetta blogg. Svo flott tala að ég íhugaði alvarlega að bæta ekki í safnið og kalla þetta bara gott. En ákvað svo að 501 væri líka flott tala. Hver man ekki eftir Levi's 501? Mar var þokkalega ekki kona með konum nema að kona ætti sollis hérna í den.
Free counter and web stats