föstudagur, júní 22, 2007

Veröld sem var.....

Var að rifja upp hitt & þetta, gagn og nauðsynjar sem hafa komið og farið í áranna (og jafnvel aldanna) rás og staðreyndir um íslenskt þjóðfélags- og efnahagslíf sem manni finnst hálffyndnar í dag en var víst raunveruleiki fyrir "örfáum" árum.

ávísanir: Ég man mjög skýrt eftir því að hafa fengið ávísun hjá pabba/mömmu fyrir hinum ýmsu nauðsynjum. Meira að segja man þá tíma þegar maður var ekki sjálfkrafa álitinn vafasamur skjalafalsari af því að greiða með svoleiðis fyrirbæri.

skífusímar: Blessuð börnin sem í dag stauta sig fram úr hinu sígilda "Við lesum" horfa forviða á mynd af þessu skrítna tæki við síklassísku setninguna "Ari símar í Völu". Ég man ennfremur eftir að hafa við fundist flottasta fólkið í sveitinni þegar pabbi kom heim með takkasíma í farteskinu úr ferð til Hollands árið 1984.
gjaldeyrishöft: Muniði eftir að hafa þurft að fara með flugseðilinn í bankann og láta stimpla hann til að mega kaupa gjaldeyri. Já eða jafnvel að þurfa að panta hann og ef hann var ekki til tók maður ferðatékka!

biðröð hjá 'bankastjóra': Ég man svo vel eftir mömmu & pabba ræða það að þurfa að heimsækja útibússtjórann til að biðja (ég segi betla) um lán. Lán sem að sjálfsögðu þurfti að réttlæta fyrir þessari allsráðandi fígúru sem hafði, svo ég vitni í Heilsubælið í Gervahverfi, "þessar saurugu hjónarúmsáætlanir algjörlega í hendi sér"
videotækin: Ókei kannski ekki alveg farin ennþá en það styttist í það. Ég man þegar þau voru rétt að komast í almenningseign og eftir að hafa fundist foreldrar mínir alveg ferlega hallærisleg að kaupa ekki slíkt tæki fyrr en uppúr 1988. Það verður stutt í að börnin okkar viti ekkert hvaða tæki þetta eru
kassettur & þar til gerð tæki til að spila þau: Man sérstaklega eftir að hafa öfundað systur mína ógurlega þegar hún 1986 eignaðist tvöfalt kassettutæki. Tækið var skelfilega ljótt, risastór svartur kassi og það var hægt að losa hátalarana af sitt hvoru megin og stilla þeim upp á vegg og í þeim tilgangi fylgdu rosalega langar snúrur tækinu til að tengja í tækið.
Maxi popp: og man sérlega eftir þegar það "breikþrú" átti sér stað að bióin hættu að selja þessa pródúkt og fóru að poppa sjálf.
Lítil kók í alvöru gleri: með lakkrísröri - var eitthvað betra? eða meira "trít"?
Sinalco: muniði eftir orginal flöskunum frá Ölgerðinni.
Þetta gosflöskutal minnir á annað fyrirbæri sem var að fara með gler út í sjoppu og (versla fyrir þau). Maður uppskar oftar en ekki ágætlega ef maður fékk að fara með gler fyrir ömmu Sínu þegar hún bjó í Hlaðbænum.

fimmtudagur, júní 21, 2007

Future Mrs. Clooney??

Við Katrín skelltum okkur á Ocean's 13 í gær. Æi hann Georg minn er nú alveg soldið mikið sætur. Það þýðir ekkert fyrir Ella að móðgast út í það
- he is on my list*!! Myndin var bara fínasta afþreying, ekkert stjörnuhandrit svosem en ég hafði nú heldur ekkert verið að búast við því.
Hvaða mynd sem skartar tvíeykinu Clooney & Pitt hefur þegar ákveðið forskot á aðrar að mínu mati :)











* list of people (hmm já eða meira svona MEN) I am allowed to sleep with without him getting mad :)

mánudagur, júní 18, 2007

Ælupest & kvenfrelsishugsanir

Hér sit ég heima með ælupest og vorkenni sjálfri mér ógurlega. Hata ælupest meiri viðbjóðurinn. Fer samt mest í taugarnar á mér að ég get ekki slakað á, finnst að ég eigi nú að vera að nýta daginn til að setja í vél og bóna eldhúsgólfið. Hvaða fifties stemmning er þetta eiginlega? Er maður virkilega ekki komin lengra í kvenfrelsinu? Sæi minn elskulega betri helming, eins duglegur og hann nú annars er, alveg í anda vera að hugsa þetta ef hann lægi í veikindum.

föstudagur, júní 08, 2007

Smokefree

Hvílík himnasæla að geta fengið sér snæðing á Vegamótum án þess að þurfa að afklæðast út á stétt þegar maður kemur heim sökum megnrar reykingastybby.
Ég barasta skil ekkert í því að þetta hafi ekki verið löngu bannað.
Annars eru plönin að snúast í norðurátt fyrir helgina enda ljómandi góð spá fyrir Norðurlandið - æ eiga þeir það ekki inni eftir snjókomu í byrjun maí :) Sendum blessað barnið með flugi til bróður síns á morgun og svo rennum við gamlingjarnir á bílnum eftir vinnu. Alltaf gaman að koma til 'Agureyris'

þriðjudagur, júní 05, 2007

Fyrirboði um glatað sumar?

Eigum við að ræða þetta veður eitthvað?

"Sunnanátt á miðvikudag, vætusamt sunnan- og vestanlands og hiti 10 til 14 stig, en léttskýjað og hlýtt norðan- og austanlands. Hæg suðlæg átt á fimmtudag, skúrir eða þokusúld víða um land og heldur kólnandi veður. Um helgina er útlit fyrir austlæga átt með vætu í öllum landshlutum og hiti 6 til 15 stig."

Ég er að halda að útilegan sem plönuð var um helgina sé ekki að fara að gerast!

Free counter and web stats